Það sjá allir að Liverpool er besta lið ensku úrvalsdeildarinnar, liðið hefur ótrúlega yfirburði og er með 22 stiga forskot á toppi deildarinnar.
Liverpool hefur unnið 24 leiki og gert eitt jafntefli í 25 leikjum, Jurgen Klopp stjóri Liverpool, að vinna magnað starf.
Klopp hefur í fimm af sex mánuðum deildarinnar, verið kjörinn stjóri mánaðarins. Hann er fyrsti stjórinn sem vinnur verðaunin fimm sinnum á sama tímabilinu.
Verðlaunin:
Ágúst – Jurgen Klopp
September – Jurgen Klopp
Október – Frank Lampard
Nóvember – Jurgen Klopp
Desember – Jurgen Klopp
Janúar – Jurgen Klopp