Alfreð Finnbogason lék með Augsburg í kvöld sem heimsótti Eintracht Frankfurt í Þýskalandi.
Alfreð og félagar þurftu að sætta sig við ansi slæmt tap og náði liðið sér alls ekki á strik.
Frankfurt vann sannfærandi 5-0 heimasigur og spilaði Alfreð 65 mínútur fyrir gestina.
Augsburg er í 11. sæti deildarinnar með 26 stig en Frankfurt er nú tveimur sætum ofar með 28.