Borussia Dortmund varð fyrir verulegu áfalli í vikunni en ljóst er að fyrirliðinn Marco Reus er meiddur.
Reus spilaði í 3-2 tapi gegn Werder Bremen á þriðjudag en spilað var í þýska bikarnum.
Hann þurfti að fara af velli í seinni hálfleik og verður frá keppni næstu fjórar vikurnar vegna þess.
Reus mun því missa af leikjum Dortmund við Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni.
Reus er einn mikilvægasti leikmaður Dortmund en verður ekki með í 16-liða úrslitunum.