fbpx
Föstudagur 21.nóvember 2025
433Sport

Heldur starfinu þrátt fyrir að Messi sé ósáttur

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 6. febrúar 2020 11:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eric Abidal, mun halda starfi sínu sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona þrátt fyrir að Lionel Messi sé ósáttur.

Abidal var kallaður á fund hjá forseta Börsunga í gær þar sem margir töldu að Abidal yrði rekinn, svo var ekki.

Messi, stjarna Barcelona hefur ákveðið að fara í stríð við Abidal. Þetta gerir Messi eftir viðtal sem Abidal fór í. Abidal sagði að sumir leikmenn hefðu verið hættir að leggja sig fram undir stjórn Ernesto Valverde, sá var rekinn í upphafi árs. ,,Það var vandamál með leikmenn, þeir lögðu sig ekki eins mikið fram og samskiptin voru ekki frábær. Þetta eru hlutir sem fyrrum leikmaður áttar sig á,“ sagði Abidal.

,,Ég sagði félaginu mína skoðun og þeir tóku svo ákvörðun.“

Messi er ekki sáttur með þessa yfirlýsingu Abidal og fór á Instagram til að lesa yfir honum. ,,Ég kann illa við svona hluti, það verða allir að taka ábyrgð á sínu starfi og þeim ákvörðunum sem eru teknar í starfi,“ skrifaði Messi. ,,Leikmenn bera ábyrgð á því sem gerast innan vallar, við vitum þegar við spilum ekki vel. Þeir sem stýra á skrifstofunni, eiga einnig að taka ábyrgð. Taka ábyrgð á sínum ákvörðunum.“

,,Þegar þú talar um leikmenn, þá skaltu nefna nöfn. Annars eru allir undir grun, sögusagnir fara af stað sem eru ekki réttar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Heimir rifjaði upp vondar minningar með Íslandi eftir drátt gærdagsins

Heimir rifjaði upp vondar minningar með Íslandi eftir drátt gærdagsins
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Urðu agndofa þegar hann sagði þeim frá launum sínum

Urðu agndofa þegar hann sagði þeim frá launum sínum
433Sport
Í gær

Segir að Vísir sé í heilögu stríði við íþróttafélögin á Íslandi – „Alltaf eitthvað tilfinningaklám“

Segir að Vísir sé í heilögu stríði við íþróttafélögin á Íslandi – „Alltaf eitthvað tilfinningaklám“
433Sport
Í gær

Carragher varar Liverpool við – Ef þeir kaupa ekki í þessa stöðu í janúar gæti liðið misst af sæti í Meistaradeildinni

Carragher varar Liverpool við – Ef þeir kaupa ekki í þessa stöðu í janúar gæti liðið misst af sæti í Meistaradeildinni