Manuel Pellegrini virðist kenna markverðinum Roberto um að hann hafi verið rekinn frá félaginu.
Pellegrini var rekinn fyrr á tímabilinu og er David Moyes nú að reyna að laga stöðu liðsins í deildinni.
Lukasz Fabianski meiddist illa á tímabilinu og fór Spánverjinn Roberto í markið en hann gerði þar ófá mistök.
,,Því miður þá lentum við í alvarlegum meiðslum hjá markverðinum sem var frá í fjóra mánuði,“ sagði Pellegrini.
,,Frammistaða varamarkmannsins var ekki eins og við bjuggumst við. Hann kostaði nokkur mörk.“
,,Liðið tapaði þar með sjálfstrausti, úrslitin gengu ekki upp og eigendurnir ákváðu að breyta til.“