Leik Liverpool og Shrewsbury hefur verið frestað um 15 mínútur en hann er á dagskrá í kvöld.
Frá þessu er greint nú rétt í þessu en leikurinn átti upphaflega að hefjast 19:45.
Hann verður flautaður af stað klukkan 20:00 á Anfield eftir bílslys sem átti sér stað í borginni.
Það eru unglingar Liverpool sem spila leikinn í kvöld en aðalliðið er í vetrarfríi þessa stundina.