Odion Ighalo þarf allavegana mánuð til að komast í stand til að spila með Manchester United.
Frá þessu greinir Quique Sanchez Flores, fyrrum stjóri Ighalo, en þeir unnu saman hjá Watford.
,,Vandamálið er hvernig þeir æfa í Kína. Það er ekki eins og á Englandi,“ sagði Flores.
,,Er hann í alvöru tilbúinn í aðalliðsleiki í úrvalsdeildinni því líkamlega eru deildirnar svo öðruvísi?“
,,Hann þarf örugglega heilan mánuð til að komast í takt við þetta.“