KR 2-0 Valur
1-0 Kristján Flóki Finnbogason(45′)
2-0 Ægir Jarl Jónasson(68′)
KR er Reykjavíkurmeistari árið 2020 eftir úrslitaleik við Val í kvöld en spilað var á Hlíðarenda.
Það var boðið upp á fínasta leik en KR-ingar höfðu betur 2-0 og fagna þar með sigri annað árið í röð.
Kristján Flóki Finnbogason skoraði fyrra mark KR og bætti Ægir Jarl Jónasson við því öðru.
Sigurður Egill Lárusson fékk rautt spjald hjá Val á 62. mínútu en hann fékk þá tvö gul spjöld.
Valur fékk einnig vítaspyrnu í blálokin en Kristinn Freyr Sigurðsson klikkaði á punktinum.