Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, harðneitar því að Mohamed Salah sé sjálfselskur leikmaður.
Salah hefur fengið gagnrýni frá sparkspekingum sem segja hann gefa boltann of lítið fyrir framan markið.
,,Fyrir viku síðan þá var fólk að tala um Mo Salah. Mo var aldrei sjálfselskur eða meira sjálfselskur en hann á að vera,“ sagði Klopp.
,,Hann er framherji á réttum stað. Við höfum séð mörk frá Mo þar sem hann skorar með fjóra varnarmenn fyrir framan sig og hittir þaknetið.“
,,Svo þegar þú skorar ekki mörk þá segir fólk þér að gefa boltann hingað og þangað.“