Jóhann Berg Guðmundsson var ekki með Burnley sem fékk Arsenal í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í gær Leikurinn var engin frábær skemmtun en bæði lið fengu þó tækifæri til að koma boltanum í netið.
Inn vildi knötturinn þó ekki og var markalaust jafntefli niðurstaðan að þessu sinni. Arsenal er með 31 stig í 10. sæti deildarinnar og Burnley er með jafn mörg stig sæti neðar.
Mikel Arteta byrjar ekki vel í starfi hjá Arsenal en liðið hefur aðeins unnið einn leik af fyrstu sjö hans í starfi.
Arteta er með versta sigurhlutfallið af þeim stjórum sem stýrt hafa Arsenal í ár. Unai Emery hóf tímabilið og Freddie Ljungberg stýði liðinu tímabundið, áður en Arteta tók við.
Arteta hefur sótt fleiri stig að meðaltali en Ljungberg en fengið fleiri leiki til.