Gelson Martins, leikmaður Monaco, varð sér til skammar í kvöld í 3-1 tapi gegn Nimes.
Tiemoue Bakayoko fékk beint rautt spjald á 32. mínútu í kvöld og á sömu mínútu fékk Martins það sama frá dómaranum.
Bakayoko fór glannalega í leikmann Nimes og má segja að hann hafi fengið verðskuldað spjald.
Martins brást illa við og ákvað að ýta dómaranum. Hann fékk að verðlaunum rautt spjald og ýtti þá aftur í dómarann.
Þetta fáránlega atvik má sjá hér.
“ Michel Drucker voice pour Gelson Martins „pic.twitter.com/EeiUr6EDLH
— L’interiste ⭐⭐ (@L_interiste_) 1 February 2020