Everton hefur ákveðidð að lána markvörðinn Jonas Lossl aftur til Huddersfield.
Lossl kom til Everton í sumar og ætlaði að berjast við Jordan Pickford um markvarðastöðuna.
Það hefur hins vegar ekki gengið og hefur Lossl ekki spilað einn deildarleik á Goodison Park.
Lossl lék með Huddersfield frá 2017 til 2019 og mun nú reyna að hjálpa liðinu í næst efstu deild.