Sheffield United hefur gert samning við varnarmanninn Panagiotis Retsos.
Þetta var staðfest í kvöld en um er að ræða 21 árs gamlan grískan landsliðsmann.
Retsos var á mála hjá Bayer Leverkusen og hefur spilað 27 deildarleiki frá árinu 2017.
Hann var ekki fastamaður á þessari leiktíð og spilaði aðeins sex leiki í öllum keppnum.
Retsos kom frá Olympiakos árið 2017 og á að baki fimm landsleiki fyrir Grikkland.