Gary Neville eigandi Salford og félagar hans hafa keypt James Wilson, framherja til féalgsins.
Wilson er framherji sem ólst upp hjá Manchester United, hann skoraði tvö mörk í sínum fyrsta leik fyrir félagið gegn Hull árið 2014.
Wilson fór til Aberdeen í fyrra og gekk ágætlega en hefur lítið spilað í ár.
Wilson hefur verið á láni hjá Brighton, Derby og Sheffield United en fer nú í fjórðu efstu deild.
Salford er i eigu Class of 92 sem gerði garðinn frægan hjá Manchester United en félagið er staðsett í Manchester.