Það fer alls ekki vel í alla að Liverpool mun að öllum líkindum fagna sínum fyrsta meistaratitli í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Liverpool er með öruggt forskot á toppi deildarinnar eftir 24 umferðir og eru heil 19 stig í næsta lið.
Það stefnir því allt í það að Liverpool vinni úrvalsdeildina í fyrsta sinn síðan hún var stofnuð árið 1992.
Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson setti út komíska færslu á Twitter-síðu sína í kvöld sem tengist einmitt gengi Liverpool sem og kórínavírusnum sem flestir eru farnir að kannast við.
Stefán grínast með tilhugsunina hversu svekktir Liverpool-menn yrðu að missa af titlinum ef vírusinn endar á að þurrka út hálft mannkynið.
Það eru að sjálfsögðu engar líkur á því en það er eitthvað komískt við tilhugsunina að félagið þyrfti að bíða enn lengur eftir titlinum.
Auðvitað væri það ömurlegt ef kórónavírusinn slátrar hálfu mannkyni og þurrkar út siðmenninguna… en tilhugsunin um hvað Liverpool-menn yrðu svekktir að missa af titlinum eftir allt saman yljar nú smá.
— Stefán Pálsson (@Stebbip) 30 January 2020