Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hefur útskýrt af hverju Fred tók aukaspyrnu liðsins undir lokin í gær gegn Manchester City.
United þurfti mark þegar lítið var eftir en Fred fékk að taka spyrnuna þó að Juan Mata hafi verið inná.
,,Juan er einn sá besti þegar hann er í stuði. Í gær þá æfðu þeir og Juan sagði mér að Fred hefði verið ótrúlegur á æfingum,“ sagði Solskjær.
,,Hann skoraði víst sex eða sjö í röð og þeir töldu að þetta væri hans stund. Þeir tóku þessa ákvörðun.“
,,Hún var líklega rétt en gekk ekki upp eins og við vildum.“