Harvey Elliott, leikmaður Liverpool, reyndist hetja varaliðsins í gær sem spilaði við Wolves.
Um var að ræða leik í ‘Premier League International Cup’ en honum lauk með 2-2 jafntefli.
Elliott skoraði síðasta mark leiksins er hann skoraði á 54. mínútu til að jafna metin.
Táningurinn skoraði frábært mark með bakfallspyrnu og fagnaði vel og mikið eftir að boltinn söng í netinu.
Þetta má sjá hér.
🔥 Harvey Elliott’s bicycle kick earlier this evening!
— Anfield Edition (@AnfieldEdition) 29 January 2020