Cristiano Ronaldo skráði sig á spjöld sögunnar í gær, kannski ekki merkilegasta spjaldið í sögunni þó.
Ronaldo er fyrsti einstaklingurinn í heiminum sem er með 200 milljónir fylgjenda á Instagram.
Ronaldo er stærsta stjarnan í íþróttaheiminum og hefur verið síðustu ár, Instagram reikningur hans færir honum gríðarlegt magn af tekjum.
Það vekur athygli að Ronaldo er með tæplega 70 milljónum fleiri fylgjendur en öll lið ensku úrvalsdeildarinnar til saman.