Inter Milan gekk frá kaupum á Christian Eriksen í vikunni og varð hann strax verðmætasti knattspyrnumaður Seriu A.
Transfermarkt segir frá en aldur, samningur og laun hafa eitthvað að segja. Þá hafa afrek leikmenns mikið að segja.
Hann tekur fram úr Paulo Dybala hjá Juventus en Cristiano Ronaldo sem er að verða 35 ára gamall situr í sjötta sæti.
Inter fékk Eriksen fyrir um 18 milljónir punda frá Tottenham en annars hefði hann farið frítt frá Spurs í sumar.