fbpx
Sunnudagur 23.nóvember 2025
433Sport

Fernandes búinn að semja um kaup og kjör við United

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 16. janúar 2020 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United og Sporting Lisbon eru nú að deila um kaupverðið á Bruno Fernandes, miðjumanni félagsins. United vill kaupa Fernandes og Sporting er tilbúið að selja. Talið er að Fernandes sé á leið til United í þessum glugga vegna fjárhagsvandræða Sporting Lisbon.

Ensk blöð segja að United sé búið að bjóða 50 milljónir punda, og 10 milljónir punda að auki í bónusa. Það fer eftir frammistöðu liðsins og Fernandes, hversu mikið Sporting fær af því.

Sporting vill hins vegar 64 milljónir punda strax, ekki neina bónusa en félögin deila um þessi mál núna.

Fernandes hefur sjálfur samið um kaup og kjör við United, ESPN og Telegraph segja frá. Búist er við að boltinn fari að rúlla hraðar og gæti Fernandes orðið leikmaður United á næstu dögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Kjartan segir liggja við að maður stytti ævina um nokkur ár með því að heimsækja þessa borg – „Hún var skelfileg, ég er ekki aðdáandi“

Kjartan segir liggja við að maður stytti ævina um nokkur ár með því að heimsækja þessa borg – „Hún var skelfileg, ég er ekki aðdáandi“
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Ávaxta Manchester United og Liverpool þitt pund?

Langskotið og dauðafærið – Ávaxta Manchester United og Liverpool þitt pund?