Gonzalo Higuain skoraði frábært mark fyrir Juventus í kvöld sem spilar nú við lið Udinese.
Um er að ræða leik í ítalska bikarnum en Juventus er með þægilega forystu eftir fyrri hálfleikinn.
Higuain skoraði fyrsta mark Juventus eftir frábæran samleik við Paulo Dybala.
Stuttu seinna skoraði Dybala annað mark Juventus en þá úr vítaspyrnu.
Hér má sjá magnað mark Higuain.
What a goall Higuain ⚽️⚽️⚽️ #JuveUdinese pic.twitter.com/FvkUXhQoie
— JC (@JVCNTR) 15 January 2020