Búið er að ákveða að næsta Afríkukeppni fari fram í janúar og febrúar árið 2021. Þannig munu margar af stjörnum ensku úrvalsdeildarinnar missa af mörgum leikjum.
Mesta höggið verður fyrir Liverpool en svo gæti farið að Mo Salah og Sadio Mane missi af sex deildarleikjum á næstu leiktíð.
Fyrst um sinn átti keppnin að fara fram sumarið 2021 en hefur verið færð fram í janúar, vegna veðurs.
Keppnin hefur oft reynst enskum liðum illa en Liverpool missir þarna tvo af sínum bestu sóknarmönnum. Fleiri lið munu missa mikivæga menn og má þar nefna Manchester City, Arsenal og fleiri.
Confirmed – the 2021 Africa Cup of Nations will take place in January and February next year.
That means it'll be in the middle of the Premier League season.
It means Salah, Mane, Aubameyang, Zaha, Ndidi, Mahrez etc could miss up to 6 Premier League games next season.
— John Bennett (@JohnBennettBBC) January 15, 2020