Diego Costa er ansi sérstakur karakter en hann er þekktur fyrir það að vera mjög skapmikill innan vallar.
Enskir aðdáendur fengu að kynnast Costa þegar hann spilaði með Chelsea og vann deildina tvisvar.
Costa er í dag á mála hjá Atletico Madrid en það hefur gengið erfiðlega þar undanfarna mánuði.
John Terry, fyrrum liðsfélagi Costa, birti ansi skondið myndband á Instagram síðu sína í gær.
Þar má sjá Costa boxa við eldri mann en myndbandið var tekið upp árið 2015. Það má segja að maðurinn hafi verið í vandræðum með framherjann!
I never knew I needed a video of Diego Costa fighting an old man 😂😂😂 pic.twitter.com/jgdH3GbzyH
— TLV (@TheLampardView) 9 January 2020