Höskuldur Gunnlaugsson opnaði sig í þættinum Fótbolti.net í dag en hann er á dagskrá á X-inu 977.
Höskuldur fór þar yfir ýmis mál en hann er samningsbundinn Halmstad í Svíþjóð og lék með Breiðabliki á síðustu leiktíð hér heima.
Hann var á láni hjá Blikum frá sænska liðinu en er farinn aftur til Halmstad. Líkur eru þó á því að Höskuldur spili með þeim grænu næsta sumar.
Höskuldur ræddi á meðal annars um eigin bróðurmissi en bróðir hans féll frá síðasta sumar er hann lék með Blikum.
Degi eftir að bróðir hans féll frá þá skoraði Höskuldur í leik gegn ÍA og benti þar til himinns sem vakti athygli.
Höskuldur segir að það hafi verið erfiðasta stund ævinnar hingað til en fannst það rétt að spila leikinn til að heiðra minningu bróður síns.
,,Þetta var náttúrulega bara það erfiðasta sem maður hefur lent í og mesta áfall sem maður hefur lent í sem maður er enn að vinna úr,“ sagði Höskuldur.
,,Mig langaði að spila fyrir hann einhvern veginn og það var gut tilfinningin sem ég ákvað að fylgja. Fótboltinn var okkar tenging og ég fór í fótbolta út af honum, við fórum á sparkvöll saman og hann var að þjálfa mig og mér fannst voða gott í gegnum fótboltann að vinna í sorgarferlinu og gera smá meiningu úr því til að heiðra hans minningu.“
,,Þetta var mjög mikilvægt fyrir mig og fjölskylduna mína og alla sem þekktu hann að einhvern veginn að skora þetta mark og tileinka honum það. Mig langaði svo að gera það um nóttina þegar ég hugsaði hvort ég ætti að spila leikinn eða ekki. Ég var í sjokk ástandi og það var gut tilfinning sem ég ákvað að fylgja.“
,,Mörgum fannst þetta skrítið, maður svaf ekkert um nótina og borðaði ekkert og það var ekki ideal að spila fótboltaleik en mig langaði svakalega að spila fyrir hann og fjölskylduna. Mér fannst það gott og það var styrkur fyrir fjölskylduna.“