Stuðningsmaður Manchester City hefur verið dæmdur í fimm ára bann frá knattspyrnu.
Þetta var staðfest í kvöld en stuðningsmaðurinn umtalaði ber nafnið Ian Baldry og er 58 ára gamall.
Baldry var með rasisma í garð Raheem Sterling, leikmanns City, í leik liðsins gegn Bournemouth í desember 2018.
Baldry hefur nú loksins játað sök í málinu og má ekki mæta á völlinn næstu fimm árin.
Vinur Baldry, James McConell, var einnig dæmdur í bann en hann var með rasisma í garð Tyrone Mings í sama leik en hann lék þá með Bournemouth.