Sky Sports greinir frá því í kvöld að Pepe Reina sé efstur á óskalista Aston Villa í janúar.
Villa leitar sér að markverði þessa stundina eftir meiðsli Tom Heaton – hann verður frá út tímabilið.
Reina er varamarkvörður AC Milan í dag en hann gerði garðinn frægan með Liverpool.
Dean Smith, stjóri Villa, vill fá reynslumikinn markvörð til félagsins og myndi Reina henta vel,
Spánverjinn á einnig að baki leiki fyrir lið á borð við Napoli og Bayern Munchen.