Inter Milan á Ítalíu er búið að hafa samband við framherjann Olivier Giroud hjá Chelsea.
Frá þessu greina erlendir miðlar en Giroud fær ekkert að spila hjá Chelsea þessa dagana.
Frank Lampard, stjóri Chelsea, hefur viðurkennt það að Giroud gæti verið á förum í þessum mánuði.
Frakkinn er 33 ára gamall og vill finna sér nýtt félag til að halda sætinu í franska landsliðshópnum fyrir EM 2020.
Inter hefur áhuga á að taka Giroud í þessum glugga en hann hefur aðeins spilað fimm deildarleiki á leiktíðinni.