Borussia Dortmund, er eitt þeirra liða sem reyna nú að kaupa bakvörðinn öfluga Max Aarons frá Norwich. Sky segir frá.
Þessi 19 ára bakvörður er afar eftirsóttur en Tottenham, Arsenal, Everton og West Ham vilja öll fá hann.
Þá vil efsta liðið í Þýskalandi, RB Leipzig einnig fá Aarons í sínar raðir. Aarons var kostur númer tvö hjá Manchester United í sumar, ef Aaron Wan-Bissaka hefði ekki verið klár í slaginn.
Flest félög vilja kaupa Aarons í sumar en Norwich er tilbúið að selja hann í janúar fyrir 30 milljónir punda.
Tottenham er að skoða það að kaupa Aarons núna sökum þess að önnur félög vilja bíða fram á sumar.