Það fór fram stórleikur í gær er Manchester United fékk granna sína í Manchester City í heimsókn. Um var að ræða leik í enska deildarbikarnum en liðin eiga eftir að spila á Etihad vellinum, heimavelli City. City er þó í mjög góðri stöðu fyrir þann leik eftir að hafa unnið 3-1 útisigur í kvöld og nokkuð sannfærandi.
Öll mörk City komu í fyrri hálfleik en þeir Bernardo Silva og Riyad Mahrez skoruðu fyrstu tvö. Það var heppnisstimpill yfir þriðja markinu en Andreas Pereira fékk þá boltann í sig og varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. United tókst að laga stöðuna í 3-1 með marki frá Marcus Rashford en það dugði ekki til og lokastaðan, 1-3.
Rashford segir það ekki vera markið sitt sem heldur United á lífi. ,,Það er ekki markið mitt sem gefur okkur séns,“ sagði framherjin og hrósaði David De Gea, markverði liðsins.
,,David varði þrisvar eða fjórum sinnum, á magnaðan hátt. Hann er í heimsklassa og er ástæða þess að við erum á lífi. Við verðum að skilja það.“
,,Þeir breyttu leikstíl sínum frá síðustu viðureign, við þurfum að aðlagast slíku innan vallar og stýra leiknum örlítið meira.“