Chelsea mun ekki fá framherjann Moussa Dembele frá Lyon í janúarglugganum.
Þetta hefur forseti félagsins, Jean-Michel Aulas, staðfest en Dembele er sterklega orðaður við enska liðið.
Chelsea vill fá framherja í þessum glugga en verður að leita annað en til Lyon.
,,Moussa fer ekki neitt. Hann vill vera áfram hjá Lyon og það er best fyrir hann til að bæta leikinn,“ sagði Aulas.
,,Það hafa komið tilboð í hann og aðra leikmenn en enginn mun fara, við höldum öllum í janúar.“