Zlatan Ibrahimovic, leikmaður AC Milan, var aðeins svekktur í gær eftir leik við Sampdoria.
Zlatan spilaði sinn fyrsta leik með Milan eftir að hafa snúið aftur til félagsins á dögunum.
Svíanum tókst ekki að skora í fyrsta leik og viðurkennir smá vonbrigði eftir markalaust jafntefli.
,,Samband mitt við stuðningsmenn er ennþá frábært og það hvetur mig verulega áfram,“ sagði Ibrahimovic.
,,Ég vildi komast á völlinn, skora mark og fagna eins og Guð fyrir framan stuðningsmennina.“