Manchester City er komið yfir gegn Manchester United en liðin eigast við í deildarbikarnum.
Um er að ræða fyrri leik liðanna af tveimur en spilað er á Old Trafford í kvöld.
Það var Bernardo Silva sem skoraði mark City og var það svo sannarlega af dýrari gerðinni.
Silva átti skot fyrir utan teig sem David de Gea réð ekki við í marki United og það skiljanlega.
Hér má sjá markið.
BERNARDO SILVA WHAT A GOAL pic.twitter.com/2B7tsJvprX
— mx (@LeooMessi10i) 7 January 2020