Sadio Mane, leikmaður Liverpool, var í kvöld valinn leikmaður ársins í Afríku í fyrsta sinn.
Mane hefur spilað frábærlega með Liverpool á tímabilinu og vann Meistaradeildina með félaginu í sumar.
Það voru ófáir góðir sem komu til greina og má nefna Riyad Mahrez og Mohamed Salah.
Mahrez vann deildina með Manchester City á síðustu leiktíð og Salah er þá liðsfélagi Mane.
Það var enginn annar en Samuel Eto’o sem afhenti Mane verðlaunin en hann vann þau sjálfur fjórum sinnum á ferlinum.