Chelsea borgaði 26,6 milljónir punda fyrir að reka Antonio Conte og hans menn úr starfi sumarið 2018. Það tók langan tíma að losa Conte úr starfi og þessi upphæð útskýrir af hverju.
4,3 milljarðar fóru af reikingi Chelsea þegar Conte var rekinn úr starfi en hann hafði ári áður gert liðið að Englandsmeisturum.
Conte var á góðum samningi og því þurfti Chelsea að taka upp heftið en hann stýrði liðinu í tvö ár. Maurizio Sarri tók við starfi hans en var rekinn eftir eitt ár.
Conte er í dag þjálfari Inter en ljóst er að þessir fjármunir muni nýtast honum lengi. Frank Lampard er í dag stjóri Chelsea en Roman Abramovich, eigandi félagsins elskar að reka stjóra sína úr starfi.