Það er styttu æði í knattspyrnuheiminum og þá aðallega að vinna skemmdarverk á þeim, í gær var styttu Zlatan Ibrahimovic slátrað.
Styttan var sett upp í heimabæ hans, Malmö á síðasta ári. Zlatan ákvað svo að kaupa hlut í Hammarby, sem eru keppinautar Malmö. Síðan þá hefur styttan fengið það óþvegið og var felld í gær.
Það var svo í nótt sem styttan af Alexis Sanchez, var slátrað í Síle. Styttan er í heimabæ hans, Tocopilla.
Andlitið á styttunni var brotið þarf að fara í miklar lagfæringar til að laga hana. Sanchez er á láni hjá Inter frá Manchester United.