Aron Einar Gunnarsson og Heimir Hallgrímsson fengu alvöru skell í Katar í dag.
Aron er kominn til baka eftir meiðsli og fékk gult spjald í dag er Al-Arabui mætti Al-Sadd.
Leikið var á heimavelli Al-Arabi sem komst yfir með marki frá Marc Muniesa.
Þá fór allt til fjandans hjá heimamönnum og skoraði Al-Sadd sex mörk og vann að lokum 6-1 sigur.
Það er spænska goðsögnin Xavi sem stýrir Al-Sadd og hafði svo sannarlega betur gegn Heimi.