Það var nóg af fjöri í ítalska boltanum í dag er fjórum leikjum er nú lokið á þessum fína mánudegi.
Zlatan Ibrahimovic lék sinn fyrsta leik fyrir AC Milan og kom inná sem varamaður gegn Sampdoria.
Zlatan tókst ekki að skora í fyrsta leik en leiknum lauk með markalausu jafntefli.
Cristiano Ronaldo skoraði þrennu fyrir Juventus í sannfærandi 4-0 sigri á Cagliari. Öll mörk Ronaldo komu í seinni hálfleik.
Atalanta vann þá öruggan 5-0 heimasigur á Parma og Bologna og Fiorentina gerðu 1-1 jafntefli.