Gillingham 0-2 West Ham
0-1 Pablo Zabaleta(74′)
0-2 Pablo Fornals(90′)
West Ham United er komið áfram í næstu umferð enska bikarsins eftir leik við Gillingham í kvöld.
Um var að ræða síðasta leik dagsins í enska bikarnum en á morgun fer fram viðureign Arsenal og Leeds.
Það voru tvö mörk skoruð í kvöld en Pablo Zabaleta og Pablo Fornals tryggðu West Ham sigurinn.
Zabaleta var að skora sitt fyrsta mark fyrir West Ham en hann er bakvörður og var áður hjá Manchester City.