BT Sport þurfti að biðjast afsökunar í gær eftir að hafa sýnt leik Rochdale og Newcastle í enska bikarnum.
Leiknum var lýst af þeim Peter Drury og Robbie Savage en honum lauk með 1-1 jafntefli.
Það heyrðist mjög skýrt hvað stuðningsmenn Newcastle sungu í átt að Savage sem er fyrrum atvinnumaður.
,,Robbie Savage er aumingi,“ sungu stuðningsmenn Rochdale og heyrðist það mjög skýrt í sjónvarpinu.
,,Ef þið heyrið blótsyrði frá stuðningsmönnum þá biðjumst við afsökunar. Við erum alveg hliðina á þeim eins og heyrist,“ sagði Drury í beinni.
Það var þó ekkert sem sjónvarpsstöðin gat gert að svo stöddu annað en að biðjast afsökunar – söngvarnir héldu áfram til leiksloka.
‘ROBBIE SAVAGE, IS A WANKER, IS A WANKER’
Top class from the Newcastle fans. 🤣 pic.twitter.com/1SCG0dHrP6— Harry – IFB (@CFCHarry_) 4 January 2020