Newcastle United á Englandi vonar að koma Zlatan Ibrahimovic til AC Milan muni hjálpa félaginu.
Newcastle ætlar að fá sér framherja í janúar en hinn brasilíski Joelinton hefur lítið sem ekkert getað á leiktíðinni.
Ensk blöð segja að Newcastle sé nú á eftir Krzysztof Piatek sem leikur með AC Milan.
Piatek er 24 ára gamall framherji en hann hefur ekki staðist væntingar hjá Milan á þessu tímabili.
Zlatan samdi við Milan á frjálsri sölu á dögunum og gæti orðið aðal vopn liðsins í fremstu víglínu.
Steve Bruce, stjóri Newcastle, hefur rætt við ítalska félagið og gæti Piatek endað á því að koma á lánssamningi.