Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, óttast að James Milner sé alvarlega meiddur eftir leik við Everton í dag.
Liverpool vann 1-0 heimasigur á Everton í bikarnum þar sem margar stjörnur fengu hvíld.
,,Tveir leikmenn [Milner og Joe Gomez] byrjuðu síðasta leik og einn af þeim meiddist, það er staðan,“ sagði Klopp.
,,Þess vegna gera margir stjóra breytingar; þetta tengist keppninni ekki neitt heldur tímasetningunni.“
,,Milner finnur mikið til og það segir mér að það sé alvarlegt. Þetta eru vöðvameiðsli.“