Zlatan Ibrahimovic skoraði sitt fyrsta mark fyrir AC Milan í gær eftir að hafa samið við félagið á ný.
Zlatan gekk í raðir AC Milan á frjálsri sölu á dögunum eftir dvöl hjá LA Galaxy í Bandaríkjunum.
Deildin er ekki farin af stað eftir hlé á Ítalíu en Milan spilaði æfingaleik við smáliðið Rhodense.
Þar vann Milan öruggan 9-0 sigur en Zlatan skoraði þriðja mark liðsins í leiknum.
Zlatan lék með Milan frá 2010 til 2011 og gæti spilað sinn fyrsta keppnisleik í níu ár fyrir félagið gegn Sampdoria á mánudag.