Newcastle tókst ekki að vinna lið Rochdale í dag er liðin áttust við í enska bikarnum.
Leikið var á heimavelli Rochdale en smáliðið tókst að gera 1-1 jafntefli við Newcastle.
Gestirnir komust yfir á 17. mínútu er Miguel Almiron skoraði annað mark sitt fyrir félagið.
Staðan var 0-1 þar til á 79. mínútu er Aaron Wilbraham jafnaði metin fyrir Rochdale.
Það mark er ansi sérstakt en Wilbraham er 40 ára gamall og hefur lengi verið hluti af boltanum.
Markið var lagt upp á Wilbraham af hinum 17 ára gamla Luke Matheson en heil 23 ára eru á milli þeirra!
17-year-old Luke Matheson sets up 40-year-old Aaron Wilbraham to bring Rochdale level against Newcastle. Magic of the FA Cup 🙌 pic.twitter.com/WFfJZSYPU6
— ESPN UK (@ESPNUK) 4 January 2020