Thomas Lemar, leikmaður Atletico Madrid, er mögulega á förum frá félaginu í janúarglugganum.
Þetta segir Diego Simeone, stjóri Atletico, en hann viðurkennir að Lemar hafi einfaldlega ekki staðist væntingar hjá félaginu.
,,Lemar er mikilvægur leikmaður sem hefur ekki náð að þróa sinn leik en hann er með eiginleika sem aðrir eru ekki með,“ sagði Simeone.
,,Hvort Lemar verði hér áfram eða ekki.. Við vitum að umboðsmennirnir vinna á sérstakan hátt.“
,,Ég hef alltaf verið spenntur fyrir honum en hann hefur ekki náð að standast væntingar.“