Nuno Espirito Santo, stjóri Wolves, tjáði sig um framherjann Raul Jimenez eftir leik við Manchester United í dag.
Leiknum lauk með markalausu jafntefli en eftir leik var Nuno spurður út í möguleg félagaskipti Jimenez til United.
Hann kannast ekki við þessar sögusagnir en viðurkennir að allt geti gerst á meðan glugginn er opinn.
,,Þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri af þessu. Ole Gunnar Solskjær nefndi þetta ekki,“ sagði Nuno.
,,Þegar félagaskiptaglugginn er opinn þá getur allt gerst. Við erum hins vegar hæstánægðir að eiga Raul.“