Carlo Ancelotti, stjóri Everton, hefur staðfest að stjórn Liverpool hefi haft samband við hann árið 2015.
Ancelotti var þá ný hættur sem stjóri Real Madrd en hann kom til greina sem nýr stjóri Liverpool áður en Jurgen Klopp við.
,,Ég ræddi við eigendur Liverpool eftir að hafa yfirgefið Real Madrid. Þeir voru að leita að nýjum stjóra en ég held að þeir hafi tekið rétta ákvörðun,“ sagði Ancelotti.
,,Jurgen er að gera frábæra hluti hjá Liverpool. Vel gert. Hann hefur búið til magnað lið skipað mögnuðum leikmönnum.“
,,Þeir eru á mjög góðu róli þessa stundina en við megum ekki hugsa of mikið um þá.“
Þessi tvö grannalið eigast við á morgun í enska bikarnum.