Barcelona komst aftur á toppinn á Spáni í kvöld eftir leik við granna sína í Espanyol.
Það var boðið upp á fjörugan leik á heimavelli Espanyol sem lauk með 2-2 jafntefli.
Espanyol komst yfir á 23. mínútu en þeir Luis Suarez og Arturo Vidal komu Börsungum yfir í seinni hálfleik.
Undir lok leiksins skoraði svo Lei Wu jöfnunarmark fyrir Espanyol til að tryggja liðinu eitt stig.
Stuttu áður hafði Frenkie de Jong fengið rautt spjald hjá Barcelona sem var hans fyrsta á ferlinum.
Barcelona er með 40 stig á toppnum, jafn mörg stig og Real Madrid sem er með verri markatölu.