Knattspyrnumenn á Spáni hafa lent í leiðindum síðustu mánuði en það er albanskt glæpagengi sem hefur verið í því að brjótast inn til leikmanna.
Leikmenn á borð við Thomas Partey, Alvaro Morata og Javier Hernandez hafa lent í klóm innbrotsþjófana.
Nýjasta fórnarlambið er Denis Suarez, leikmaður Celta Vigo, sem lék áður með Barcelona.
Brotist var inn heima hjá Suarez og kærustu hans Nadila Aviles á meðan þau voru úti að skemmta sér.
Samkvæmt spænskum fregnum þá ákváðu innbrjótsþjófarnir hins vegar ekki að stela neinu af heimili þeirra sem vekur athygli.
Þjófarnir dæmdu það þannig að það væri ekkert þess virði að stela og leituðu því annað stuttu seinna.
Þjófarnir náðu að opna lokaðan peningaskáp en þar var hins vegar ekkert að finna.