Jack Rodwell, fyrrum leikmaður Manchester City, er að fara fá annað tækifæri í ensku úrvalsdeildinni. Rodwell hefur verið án félags síðustu mánuði en hann yfirgaf þá lið Blackburn í næst efstu deild.
Chris Wilder, stjóri Sheffield United, hefur ákveðið að gefa Rodwell séns á að sanna sig. Hann fær sex mánaða samning
Þessi 28 ára gamli leikmaður á að baki þrjá landsleiki fyrir England en hefur aðeins spilað 25 leiki á tveimur árum.
Sheffield hefur komið á óvart í ensku úrvalsdeildinni en Rodwell gæti spilað um helgina í bikarnum.