Jose Mourinho, stjóri Tottenham, hefur staðfest það að félagið gæti losnað við Christian Eriksen í mánuðinum.
Eriksen verður samningslaus næsta sumar en hann hefur ekki viljað framlengja samning sinn.
Félagið reynir að ná samkomulagi við Danann en Mourinho viðurkennir að það sé ekki víst.
,,Ég veit ekki hvað gerist og það er hreinskilni. Þið þekkið stöðuna, eins og er getur hann samið við hvaða félag sem er. Það er möguleiki,“ sagði Mourinho.
,,Annar möguleiki er að félagið og hann vilji ná samkomulagi í janúar. Í þeirri stöðu þá ræður félagið. Við erum með stjórn á stöðunni.“